Erlent

Segir vopnahlé tilgangslaust

Condoleezza Rice Utanríkisráðherra Bandaríkjanna heldur til Ísraels á morgun.
Condoleezza Rice Utanríkisráðherra Bandaríkjanna heldur til Ísraels á morgun. MYND/AP

Condoleezza Rice, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, segir engan tilgang í því að Ísraelar hætti strax árásum á Líbanon. Vopnahlé núna væri falskt loforð, sagði hún á blaðamannafundi í Washington í gær.

Sýrlendingar vita hvað þeir þurfa að gera og Hizbollah er rót vandans, sagði hún.

Hún ætlar að halda til Ísraels á morgun og síðan til Rómar þar sem hún ætlar að hitta ráðamenn frá Evrópusambandinu og fulltrúa frá Líbanon og arabaríkjum.

Ísraelski landherinn bjó sig í gær undir innrás í Líbanon og virtist ætla að hertaka suðurhluta landsins á ný.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×