Erlent

Ísraelar hafa viku til að gera árásir

Á leið yfir landamærin Ísraelskir hermenn héldu yfir landamærin til Líbanons í gær og lentu þar í hörðum átökum við liðsmenn Hizbollah, sem kostuðu tvo ísraelska hermenn og einn Hizbollah-mann lífið.
Á leið yfir landamærin Ísraelskir hermenn héldu yfir landamærin til Líbanons í gær og lentu þar í hörðum átökum við liðsmenn Hizbollah, sem kostuðu tvo ísraelska hermenn og einn Hizbollah-mann lífið. MYND/AP

Bandarísk og ísraelsk stjórnvöld hafa komið sér saman um að ísraelski herinn geti haldið áfram árásum sínum á Líbanon, athugasemdalaust af hálfu Bandaríkjanna, í um það bil eina viku í viðbót með það markmið að valda sem mestu tjóni á vígbúnaði Hizbollah-samtakanna, að því er bæði bandaríska dagblaðið New York Times og breska dagblaðið Guardian héldu fram í gær.

Að því búnu muni Condoleezza Rice, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, halda af stað til Ísraels og Líbanons til þess að þrýsta á um vopnahlé. Tony Snow, talsmaður Hvíta hússins í Washington, staðfesti það á blaðamannafundi í gær að bandarísk stjórnvöld teldu rétt að Ísrael héldi árásunum áfram þangað til Hizbollah-samtökin yrðu orðin óvíg. „Vopnahlé sem myndi skilja vígbúnað hryðjuverkamanna eftir óskemmd­an er óviðunandi,“ sagði hann.

Ísraelar héldu því fram í gær að með loftárásunum hefði þeim tekist að eyðileggja um það bil helminginn af vígbúnaði Hizbollah-samtakanna, að því er fram kemur í fréttaskeyti frá AP-fréttastofunni. „Það tekur okkur einhvern tíma að eyðileggja það sem eftir er,“ sagði Alon Friedman, herforingi í ísraelska land­hernum, í viðtali við útvarpsstöð Ísraelshers í gær.

Evrópusambandið er ósammála þessu. Javier Solana, utanríkismálafulltrúi Evrópusambandsins, sagði í gær nauðsynlegt að vopnahlé kæmist á sem fyrst. Áður hafði Kofi Annan, framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, gert kröfu um að samið yrði um vopnahlé sem allra fyrst.

Ísraelsk stjórnvöld höfðu á þriðjudaginn sagst undir það búin að átökin stæðu vikum saman. Átökin, sem nú þegar hafa staðið í rúma viku, hafa orðið um þrjú hundruð manns að bana og um það bil hálf milljón manna hefur hrakist að heiman vegna þeirra.

uad Saniora, forsætisráðherra Líbanons, sagðist í gær ætla að krefja Ísrael um skaðabætur vegna þess tjóns sem árásirnar hafa valdið.

„Er þetta það sem alþjóðasamfélagið kallar rétt til sjálfs­varnar?“ spurði hann á fundi með erlendum sendiherrum í Líbanon. Meðal þeirra sem hlýddu á mál hans var sendiherra Bandaríkjanna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×