Erlent

Fjórburar á eftir þríburum

Bandarískri móður varð ekki um sel þegar hún eignaðist fílhrausta fjórbura í síðustu viku. Hún eignaðist nefnilega þríbura fyrir þremur árum, og átti tvær unglingsstúlkur fyrir.

Fyrri börnin urðu til með aðstoð frjósemislyfja, en engin lyf komu við sögu við getnað fjórburanna.

Ég veit eiginlega ekki hvort ég er sorgmædd eða glöð, sagði hin fertuga Angela Magdaleno, sem enn var í uppnámi. Þó mann hennar hafi langað til að eiga mörg börn, taldi hún nóg komið eftir fæðingu þríburanna og var seinni þungunin slys.

Fjölskyldan býr í tveggja herbergja íbúð í Los Angeles.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×