Menning

Allt um Erró í haust

Páll Valsson, útgáfustjóri hjá Eddu útgáfu, og Hafþór Yngavson, safnstjóri Listasafns Reykjavíkur 
Undirrituðu samning um nýja Erróbók í vikunni
fréttablaðið/ Vilhelm
Páll Valsson, útgáfustjóri hjá Eddu útgáfu, og Hafþór Yngavson, safnstjóri Listasafns Reykjavíkur Undirrituðu samning um nýja Erróbók í vikunni fréttablaðið/ Vilhelm
Nýlega var undirritaður samningur um nýja veglega listaverkabók um feril Errós. Hafþór Yngvason safnstjóri Listasafns Reykjavíkur segir að bókin, sem ber vinnutitilinn Erró í tímaröð, komi út í fyrrihluta októbermánaðar en stefnt er að því fagna tilefninu með veglegu hætti og er listamaðurinn væntanlegur til landsins.

"Höfundur bókarinnar er Danielle Kvaran bókmenntafræðingur en hún hefur unnið markvisst að skráningu á ferli Erró frá árinu 1998 en bókin byggir á rannsóknarvinnu hennar," segir Hafþór. Bókin verður um 400 síður og hana munu að sönnu prýða margar myndir, bæði af verkum listamannsins sem og myndum úr hans eigin lífi. Höfundur bókarinnar hefur m.a. haft aðgang af bréfa- og myndasafni listamannsins. "Hún hefur farið gaumgæfilega yfir líf og störf listamannsins. Það er dálítið skondið að hitta þau saman," segir Hafþór og áréttar að hann vildi síður hitta slíkan sérfræðing í sínu eigin lífi.

Bókin verður gefin út samtímis á islensku, ensku og frönsku og mun Sigurður Pálsson annast íslensku þýðinguna.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.