Viðskipti innlent

Dagsbrún vill Wyndeham

Gunnar Smári Egilsson, forstjóri Dagsbrúnar. Dagsbrún hefur gert tilboð í öll hlutabréf í breska prentfyrirtækið Wyndeham Press Group fyrir tíu milljarða króna.
Gunnar Smári Egilsson, forstjóri Dagsbrúnar. Dagsbrún hefur gert tilboð í öll hlutabréf í breska prentfyrirtækið Wyndeham Press Group fyrir tíu milljarða króna.

Dagsbrún hefur gert yfirtökutilboð í breska prent- og samskiptafyrirtækið Wyndeham Press Group, sem er skráð í kauphöllina í Lundúnum, og nemur verðmæti yfirtökunnar 80,6 milljónum punda eða tíu milljörðum króna. Það er dótturfélag Dagsbrúnar, Daybreak, sem stendur að yfirtökunni með aðstoð Landsbankans og Teather & Greenwood.

Stjórn Wyndeham hefur lagt blessun sína yfir tilboðið sem hljóðar upp á 155 pens á hvern hlut. Í gærmorgun höfðu eigendur um 20 prósent hlutafjár gefið samþykki sitt fyrir kaupunum en tilboðið hljóðar upp á 1,55 pund á hvern hlut sem 21 prósent yfirverð frá lokagengi á miðvikudaginn.

Wyndeham er eitt af stærstu prentfyrirtækjum á Bretlandseyjum, prentar yfir 600 tímarit í hverjum mánuði og býður upp á víðtækar lausnir fyrir útgefendur og auglýsendur á sviði prentunar. Félagið velti yfir 17,5 milljörðum króna á síðasta reikningsári og skilaði um 700 milljóna króna hagnaði fyrir skatta.

"Þetta félag er á góðu verði og hefur mikla vaxtarmöguleika. Félagið er í rekstri sem er okkur ekki ókunnugur og það hefur reynst okkur vel að vera í prentun og dreifingu á sama tíma og við höfum verið í fjölmiðlum," segir Gunnar Smári Egilsson, forstjóri Dagsbrúnar.

Wyndeham hefur byggst upp í gegnum fjölmörg fyrirtækjakaup og samruna á liðnum árum. "Við sjáum tækifæri annars vegar að láta þetta fyrirtæki vaxa eitt og sér, vegna stærðar þess, og hins vegar að það opnist möguleikar fyrir aðra þætti í starfsemi Dagsbrúnar."

Hann segir að þessi kaup breytu engu um vaxtaráform félagsins á Norðurlöndunum. Deutsche Bank, sem hefur Orkla Media til sölu, opnar bækur fjölmiðlafélagsins í næstu viku og þá munu forsvarsmenn Dagsbrúnar ákveða í framhaldi af því hvort fyrirtækið taki þátt í tilboðsferlinu. Þá hefur félagið stofnað dótturfélag í Danmörku sem vinnur að stofnun fríblaðs.

Frá áramótum hefur Dagsbrún fjárfest grimmt innan- sem utanlands. Félagið festi kaup á Securitas í janúar fyrir um 3,2 milljarða, á Senu fyrir 3,6 milljarða og stefnir að yfirtöku á Kögun eftir að hafa greitt 7,2 milljarða fyrir 51 prósenta hlut í þessari viku. Gangi yfirtakan á Kögun og Wyndeham eftir hefur Dagsbrún fjárfest fyrir 31 milljarða á árinu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×