Viðskipti innlent

Kaupin á Orkla ekki lykilatriði

Þórdís Sigurðardóttir er stjórnarformaður Dagsbrúnar. Hún segir enn unnið að undirbúningi og útreikningum varðandi útgáfu fríblaðs í Danmörku.
Þórdís Sigurðardóttir er stjórnarformaður Dagsbrúnar. Hún segir enn unnið að undirbúningi og útreikningum varðandi útgáfu fríblaðs í Danmörku.

Dagsbrún ætlar að gefa út fríblað í Danmörku, með Fréttablaðið sem fyrirmynd, hvort sem keypt verður í norsku fjölmiðlasamsteypunni Orkla Media eða ekki. Samkvæmt heimildum blaðsins er stefnt að útgáfu seinnipart sumars eða í haust.

Þórdís Sigurðardóttir, stjórnarformaður Dagsbrúnar, segir unnið að nánari útfærslu viðskiptahugmyndarinnar þar sem útgáfa Fréttablaðsins er yfirfærð á danskan markað. "Allt er þetta samt á vinnslustigi. Svo vill til að til sölu er stærsti útgefandi héraðs- og fréttablaða í Danmörku, Berlinske Tidende, og það er auðvitað áhugaverður kostur. Hins vegar hefur ekki verið tekin ákvörðun um annað að sinni en að fylgjast með því ferli."

Þórdís segir ekki liggja fyrir tölur um áætlaðan kostnað við útgáfuna, en telur að fyrst Fréttablaðið beri sig hér þá eigi hugmyndin fullt erindi til Danmerkur. Hún segir blaðið munu mótast af dönsku samfélagi og verða mannað Dönum. "En við vonumst til að geta innleitt þann kúltúr sem við teljum hluta af þeim árangri sem Fréttablaðið hefur náð hér heima."

Í viðtali við Dagness Næringsliv í Noregi sagðist Gunnar Smári Egilsson, forstjóri Dagsbrúnar, ekki telja að fjármögnun upp á 8 milljarða norskra króna væri vandamál fyrir félagið, enda væru að baki því sterkir aðilar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×