Viðskipti innlent

Virkur eignarhlutur í SPH frá upphafi

Sparisjóður Hafnarfjarðar. Stjórn sjóðsins undrast rannsókn Fjármálaeftirlitsins á því hvort virkur eignarhlutur hafi myndast í sjóðnum. Samkvæmt skilgreiningu FME hafi slíkur eignarhlutur verið til staðar frá upphafi.
Sparisjóður Hafnarfjarðar. Stjórn sjóðsins undrast rannsókn Fjármálaeftirlitsins á því hvort virkur eignarhlutur hafi myndast í sjóðnum. Samkvæmt skilgreiningu FME hafi slíkur eignarhlutur verið til staðar frá upphafi.

Stjórn Sparisjóðs Hafnarfjarðar (SPH) telur að samkvæmt skilgreiningu Fjármálaeftirlitsins hafi virkur eignarhlutur verið til staðar í sjóðnum frá upphafi og undrast því rannsókn eftirlitsins nú. Kemur þetta fram í greinargerð sem Sparisjóðurinn sendi frá sér í gær.

Samkvæmt lögum um fjármálafyrirtæki segir að með virkum eignarhlut sé átt við beina eða óbeina hlutdeild í fyrirtæki sem nemi tíu prósentum eða meira af eigin fé, stofnfé eða atkvæðisrétti, eða aðra hlutdeild sem gerir kleift að hafa veruleg áhrif á stjórnun viðkomandi fyrirtækis.

Segir í greinargerð SPH að það hafi verið eindregin afstaða þeirra sem fóru með stjórn sjóðsins síðustu áratugina að halda fjölda stofnfjáreigenda í lágmarki þess sem lög kveði á um. Sparisjóðurinn sé sá næststærsti á landinu, en þó hafi stofnfjáreigendur einungis verið fjörutíu og fimm miðað við stöðuna í árslok 2002, samanborið við rúmlega ellefu hundruð stofnfjáreigendur hjá þeim stærsta, Sparisjóði Reykjavíkur og nágrennis.

Í ljósi þess að stofnfjáraðilar SPH voru aðeins fjörutíu og fimm blasi við að stjórn, skipuð fimm mönnum, geti ekki annað en myndað virkan eignarhluta. Framboð til stjórnar krefjist stuðnings fimm stofnfjáreigenda til viðbótar og samkvæmt túlkun Fjármáleftirlitsins á lögum um fjármálafyrirtæki myndist því virkur eignarhluti í sjóðnum sem fari með tuttugu og tvö prósent stofnfjár.

Þessi staða hafi verið óbreytt hjá SPH frá upphafi án þess að Fjármálaeftirlitið hafi séð ástæðu til að gera athugasemdir fyrr en eftir að hreyfing komst á stofnféð á síðasta aðalfundi.

Í kjölfar aðalfundarins, sem haldinn var síðastliðið sumar, komu margir nýjir stofnfjáreigendur í hópinn, þeirra á meðal Sigurður G. Guðjónsson lögmaður, fjárfestarnir Sigurður Á. Bollason og Magnús Ármann, Sjóvá, Íslandsbanki og MP-fjárfestingabanki.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×