Viðskipti innlent

FlyMe tvöfaldast í verði

Pálmi Haraldsson, aðaleigandi FlyMe. Hlutabréf í sænska lággjaldaflugfélaginu hafa hækkað um helming frá áramótum.
Pálmi Haraldsson, aðaleigandi FlyMe. Hlutabréf í sænska lággjaldaflugfélaginu hafa hækkað um helming frá áramótum.

Hlutabréf í sænska lággjaldaflugfélaginu FlyMe, sem er að stærstum hluta í eigu Pálma Haraldssonar og Jóhannesar Kristinssonar í Fons eignarhaldsfélagi, hækkuðu gríðarlega í gær í miklum viðskiptum. Gengið stóð í 0,23 sænskum krónum á hlut rétt fyrir lokun markaða og hafði hækkað um 30 prósent á einum degi. Frá áramótum er hækkunin um 85 prósent.

Straumur-Burðarás er annar stór hluthafi í FlyMe með um sex prósenta hlut.

Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins mun Ticket, ein stærsta ferðaskrifstofa Svíþjóðar, hefja sölu á miðum í vélar FlyMe í dag eða á allra næstu dögum. Ticket hefur hingað til neitað að selja fyrir FlyMe vegna bágs efnahags sænska lággjaldaflugfélagsins. Fons er stærsti hluthafinn í Ticket með fimmtán prósenta eignarhlut.

Fjöldi farþega í desember jókst um fjórtán prósent miðað við sama tíma í fyrra en 49.300 farþegar ferðuðust með félaginu. Sætanýting í nóvember og desember var yfir 70 prósent sem þykir gott á þessum tíma árs.

FlyMe, sem hefur bækistöðvar sínar í Gautaborg, ætlar að bæta við tólf nýjum leiðum í lok mars. Félagið fór út í stórt hlutafjárútboð í desember þar sem tveir milljarðar voru seldir til fjárfesta og hlutafé tífaldað. Ætla má að markaðsvirði FlyMe verði rétt um 3,5 milljarðar króna að því loknu.

Forstjóri félagsins er Jóhannes Georgsson, sem stýrði Iceland Express á upphafsárum þess.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×