Viðskipti innlent

Tilboð í Jarðboranir vel ásættanlegt

Fyrirtækjaráðgjöf Landsbankans hefur sem óháður aðili lagt mat á yfirtökutilboð Atorku Group í Jarðboranir og telur að tilboð Atorku sé vel ásættanlegt og sanngjarnt fyrir hluthafa í Jarðborunum.

Hluthafar í Jarðborunum fá 25 krónur fyrir hvert hlutabréf í skiptum fyrir bréf í Atorku á genginu 6. Síðasta gengi í Atorku var 6,85 krónur á hlut en 25,8 í Jarðborunum.

Stjórn Jarðborana leitaði til Landsbankans um að leggja mat á tilboðið með vísan til laga um verðbréfaviðskipti en þrír af fimm stjórnarmönnum í Jarðborunum eru fulltrúar frá Atorku.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×