Sport

Abdur-Rahim kjálkabrotinn

Abdur-Rahim er með 16,5 stig og 6,4 fráköst að meðaltali í leik með Sacramento í vetur
Abdur-Rahim er með 16,5 stig og 6,4 fráköst að meðaltali í leik með Sacramento í vetur NordicPhotos/GettyImages
Framherjinn Shareef Abdur-Rahim hjá Sacramento Kings verður frá keppni í nokkrar vikur eftir að hafa kjálkabrotnað í leik gegn Portland Trailblazers á mánudagskvöldið. Rahim hélt áfram að spila eftir að hafa fengið högg í andlitið frá Bonzi Wells hjá Portland, en röntgenmyndataka í dag leiddi í ljós að hann er brotinn. Þetta eru ekki góð tíðindi fyrir Sacramento, sem hefur gegnið illa í vetur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×