Sport

Tilbúinn að framlengja samning sinn

Dietmar Hamann ætlar að vera áfram hjá Liverpool
Dietmar Hamann ætlar að vera áfram hjá Liverpool NordicPhotos/GettyImages
Þýski miðjumaðurinn Dietmar Hamann hjá Liverpool hefur samþykkt að framlengja samning sinn við félagið um eitt ár, en samningur sem hann undirritaði í sumar bauð upp á eins ár framlengingu og búist er við þvi að nýr samningur verði undirritaður fljótlega. Hamann er 32 ára gamall og kom til Liverpool frá Newcastle árið 1999. Hann á að baki 57 landsleiki fyrir Þjóðverja.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×