Gabbia hetjan í borgarslagnum

Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar
Matteo Gabbia fagnaði marki sínu vel og innilega. Eðlilega.
Matteo Gabbia fagnaði marki sínu vel og innilega. Eðlilega. Marco Luzzani/Getty Images

Matteo Gabbia reyndist hetja AC Milan er hann tryggði liðinu 2-1 útisigur gegn Inter í Mílanó-slagnum í ítölsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í kvöld.

Eins og knattspyrnuunnendur vita leika bæði lið heimaleiki sína á San Siro, en það voru Inter-menn sem áttu heimaleikinn í kvöld.

Það voru hins vegar gestirnir í AC Milan, ef gesti skyldi kalla, sem tóku forystuna strax á tíundu mínútu þegar Christian Pulisic kom boltanum í netið áður en Federico Dimarco jafnaði metin fyrir Inter á 28. mínútu eftir undirbúning Lautaro Martinez.

Í síðari hálfleik leit svo lengst af út fyrir að liðin myndu skipta stigunum á milli sín og það var ekki fyrr en á 89. mínútu að sigurmarkið leit dagsins ljós. Þá var það ítalski varnarmaðurinn Matteo Gabbia sem stangaði aukaspyrnu Tijjani Reijnders í netið og tryggði AC Milan dramatískan 2-1 sigur.

Úrslitin þýða að liðin eru nú bæði með átta stig eftir fimm leiki, í sjötta og sjöunda sæti deildarinnar, en AC Milan situr ofar á innbirðis viðureignum.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira