Sport

Fékk hrákaslummu í andlitið

Robbie Savage er almennt ekki sérstaklega vel liðinn leikmaður í ensku úrvalsdeildinni
Robbie Savage er almennt ekki sérstaklega vel liðinn leikmaður í ensku úrvalsdeildinni NordicPhotos/GettyImages

Hinn umdeildi Robbie Savage hjá Blackburn ærðist eftir leik Middlesbrough og Blackburn í bikarnum í gær og vildi meina að Emanuel Pogatetz hjá Boro hefði hrækt á sig í leiknum. Í dag var honum hinsvegar runnin reiðin og segir að líklega hafi hið óþægilega atvik verið óviljaverk.

"Þetta hefur nú líklega verið óviljandi hjá honum. Hann hljóp alveg upp að mér og öskraði eitthvað á mig, með þeim afleiðingum að eitthvað spýttist framan í mig. Hann baðst síðar afsökunar á þessu og ég tók við beiðni hans,"sagði Savage.

Mark Hughes tók í sama streng og sagðist óska þess að málið væri úr sögunni. Hann tók þó sérstaklega fram að frammistaða Savage í leiknum hefði líklega verið sú besta síðan hann gekk í raðir félagsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×