Sport

Rooney getur borið England á herðum sér á HM

Jermaine Jenas hefur fulla trú á að Englendingar geti gert góða hluti á HM í sumar, ekki síst ef Wayne Rooney verður í stuði
Jermaine Jenas hefur fulla trú á að Englendingar geti gert góða hluti á HM í sumar, ekki síst ef Wayne Rooney verður í stuði NordicPhotos/GettyImages

Miðjumaðurinn Jermaine Jenas hjá Tottenham er viss um að félagi hans í enska landsliðinu, Wayne Rooney hjá Manchester United, hafi alla burði til að slá í gegn á HM í Þýskalandi í sumar og nefnir Rooney sem manninn til að koma Englendingum alla leið.

"Wayne er gríðarlega mikilvægur enska liðinu og ég hef fylgst með honum í leikjum undanfarið, þar sem hann hefur verið hreint út sagt stórkostlegur. Ef hann getur haldið áfram að spila eins og hann hefur verið að gera undanfarið, gefur það okkur enn meiri möguleika á að gera góða hluti á HM," sagði Jenas




Fleiri fréttir

Sjá meira


×