Sport

Ég er ekki grófur leikmaður

Michael Essien segir að hann sé alls ekki grófur leikmaður
Michael Essien segir að hann sé alls ekki grófur leikmaður NordicPhotos/GettyImages

Miðjumaðurinn Michael Essien vill eikki meina að hann sé grófur leikmaður, en mikið hefur verið rætt um vasklega framgöngu hans á knattspyrnuvellinum undanfarið og vilja margir meina að hann sé ruddi.

"Ég er ekki grófur leikmaður og í ljósi ásakana á hendur mér undanfarið, þykir mér rétt að taka það fram að ég hef aldrei farið í tæklingar með það fyrir augum að meiða andstæðinga mína. Ég gerði mistök um daginn þegar ég braut á Dietmar Hamann og ég hef þegar hringt í hann og beðið hann afsökunar, sem hann tók drengilega og því tel ég að þetta atvik sé úr sögunni. Það eina sem ég vil er að spila hvern einasta leik og því er það feykinóg refsing fyrir mig að verða í banni í tveimur næstu leikjum.

'Eg þarf tíma til að aðlagast ensku deildinni, rétt eins og aðrir menn í minni stöðu á undan mér, eins og til dæmis Patrick Vieira. Það er frábært að spila á Englandi og mig langar að nota þetta tækifæri til að þakka öllum sem hafa veitt mér stuðning síðan ég kom hingað," sagði Essien.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×