Sport

Viðurkenna áhuga sinn á Keane

NordicPhotos/GettyImages

Forráðamenn Real Madrid á Spáni hafa nú viðurkennt að hafa mikinn áhuga á að fá Roy Keane í sínar raðir, en spænskir fjölmiðlar voru í gær uppfullir af fregnum um að hann væri að undirgangast læknisskoðun hjá Real. Talsmenn félagsins hafa nú slegið þónokkuð á þær vangaveltur.

"Roy Keane er einn af þeim leikmönnum sem við höfum áhuga á að fá til okkar, en ekkert hefur enn verið ákveðið um að hann komi til okkar og hann hefur ekki gengist undir læknisskoðun hjá okkur, í það minnsta ekki á næstu dögum," sagði talsmaður Real Madrid.

"Keane er maður sem uppfyllir þau skilyrði sem við erum að leita að í knattspyrnumanni og því munum við ræða vandlega við hann og svo er bara að sjá hvað gerist þegar opnar fyrir félagaskiptagluggann."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×