Sport

Íhugar að leggja skóna á hilluna

Doug Christie er að spá í að leggja skóna á hilluna vegna meiðsla
Doug Christie er að spá í að leggja skóna á hilluna vegna meiðsla NordicPhotos/GettyImages
Doug Christie er nú í viðræðum við Dallas Mavericks um að ganga frá samningi hans við félagið, þar sem hann er að íhuga að leggja skóna á hilluna vegna þrálátra ökklameiðsla. Christie hefur spilað bæði sem framherji og bakvörður og er á sínu fjórtánda tímabili í deildinni. Hann er 35 ára gamall og hefur meðal annars spilað með New York, LA Lakers og Sacramento áður en hann gekk í raðir Dallas.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×