Sport

Bað um að dómur sinn yrði þyngdur

Menn ganga misjafnlega langt til að hylla íþróttastjörnur sem þeir hafa í uppáhaldi. Sennilega hafa fáir gengið jafn langt og Eric James Torpy sem var fundinn sekur um morð. Saksóknari og verjandi mannsins höfðu komist að samkomulagi um að Torpy yrði að sitja inni í þrjátíu ár fyrir morðið. Hann bað hins vegar um að fangelsisvistin yrði lengd í 33 ár, og hvers vegna, jú uppáhaldsleikmaður hans, Larry Bird, fyrrum leikmaður Boston Celtics, lék alltaf í treyju númer 33.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×