Innlent

Metanpóstbíll brann á gatnamótum

Lítil póstflutningabifreið brann á gatnamótum Laugavegs og Nóatúns um klukkan hálf tvö í gær og er ónýt eftir. Ökumaður bifreiðarinnar slapp, en vegfarandi lét hann vita af reyk undir bílnum. Að sögn Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins skemmdist nokkuð af bögglum og öðrum pósti í bílnum, sem á skammri stundu varð alelda. Bíllinn gengur fyrir metangasi, en slökkvilið taldi að af metankútum bílanna ætti ekki að stafa sprengihætta, því þeir hleypi af sér þrýstingi. Greiðlega gekk að slökkva eldinn þegar slökkvilið kom á vettvang.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×