Hafa samstarfið við SAS í huga 15. september 2005 00:01
Forstjóri SAS ætlar að slíta öllu samstarfi við Icelandair um flug á Norðurlöndunum ef FL Group kaupir Sterling-flugfélagið. Þetta kom fram í danska blaðinu Börsen í morgun. Talsmaður Flugleiða segir að samstarfið við SAS hafi verið gott og menn ætli að hafa það í huga við samningaborðið. Það er FL Group, móðurfélag Icelandair, mikið kappsmál að samningar náist enda myndi félagið eflast mjög á Evrópumarkaði og koma í veg fyrir skæða samkeppni á Ameríkumarkaði. Ef ekki yrði af kaupunum gæti Sterling sameinast Iceland Express, enda sömu eigendur að baki báðum félögum. Þar yrði til nýr flugrisi í beinni samkeppni við Flugleiðir á öllum sviðum. Guðjón Arngrímsson, talsmaður Icelandair, segir að samstarfið við SAS sé eitt af því sem félagið þurfi að taka tillit til í viðræðunum. Að öðru leyti vilji FL Group ekki tjá sig um viðræðurnar. Pálmi Haraldsson er fyrrum stjórnarmaður í Icelandair, og fái hann og aðrir eigendur greitt fyrir Sterling í hlutabréfum í FL Group gæti hann ratað þangað inn aftur. Þá eru bæði félögin hér í farþegaflutningum komin í sömu hendur.
Fréttir Innlent Viðskipti Mest lesið Biden stöðvar japanska yfirtöku á US Steel Viðskipti erlent Blöskrar 14 prósent verðhækkun tryggingarfélags Viðskipti innlent Sorpa undirbýr sig fyrir þjónustufall Neytendur Strætómiðinn dýrari Neytendur Mannauðsmál: „Enn of mikil tilhneiging til að taka ekki á málum“ Atvinnulíf „Þá hugsuðu menn: Fínt, fáum konurnar í þessi störf“ Atvinnulíf Ummæli stjórnarmanns Eflingar um sníkjudýr „til skammar“ Viðskipti innlent Vigdís frá Play til Nettó Viðskipti innlent Næstum allir nýir bílar í Noregi rafmagnsbílar Viðskipti erlent Sjónvarpskóngur allur Viðskipti erlent Fleiri fréttir Blöskrar 14 prósent verðhækkun tryggingarfélags Ummæli stjórnarmanns Eflingar um sníkjudýr „til skammar“ Vigdís frá Play til Nettó Gjafabréf og alls konar flatbökudótarí vinsælar jólagjafir í ár Innkalla nagstangir sem hundar veikjast af Nýskráning fólksbíla dróst saman um rúm fjörutíu prósent Kaupsamningar nærri helmingi fleiri en í fyrra Verkalýðshreyfingin sé stærsta ógnin við starfsöryggi á veitingastöðum Slippurinn allur að sumri loknu „Langstærsta“ vikan í sögu Ölgerðarinnar Nefna fimm veitingastaði að baki „gervikjarasamningi“ Raforka til gagnavera snarminnkað Þekktir netþrjótar réðust á kerfi Wise Discover hefur flug milli München og Íslands Hærri barnabætur og ný gjöld á nikótínvörur á nýju ári Hluthafarnir samþykkja samruna Marels við JBT Sekta þau sem ekki greiða rétt fargjald um fimmtán þúsund krónur Elma Sif til Stika Solutions Baldvin sagði upp 99 manns sem mættu ekki á morgunfund Standa vörð um bílastæði viðskiptavina Kringlunnar Vonar að allir pakkar berist til þeirra fyrir jól Kortleggja tómar íbúðir í samstarfi við sveitarfélög Jóna Björk tekur við Garðheimum Segja son og tengdadóttur Reynis ekki koma nálægt Mannlífskaupum EastJet flýgur til Basel og Lyon Margrét áfram rektor á Bifröst Ingibjörg Þórdís til Elko Fimm mætt í Kauphöllina RÚV sker sér stærri sneið af auglýsingakökunni Ársverðbólga óbreytt á milli mánaða Sjá meira