Sport

Eto´o vill fara að vinna

NordicPhotos/GettyImages
Framherjinn knái Samuel Eto´o hjá Barcelona hefur sent félögum sínum í liðinu skýr skilaboð fyrir næsta leik í spænsku deildinni, sem er einmitt gegn fyrrum félögum sínum í Mallorca. Barcelona var langt frá því að vera sannfærandi í fyrsta leik tímabilsins og Eto´o segir að leikmenn verði að sýna tennurnar í næsta leik ef þeir ætli sér að verja titilinn á Spáni. "Það er alltaf frábært að spila við Mallorca, en ég er hjá Barcelona núna og þar er ég til að skora mörk," sagði Eto´o.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×