Sport

Brassar heppnir gegn Sevilla

Stjörnum prýtt lið heimsmeistara Brasilíu slapp með 1-1 jafntefli í leik við spænska liðið Sevilla, í leik sem spilaður var í gærkvöld í tilefni af aldarafmæli spænska félagsins. Það var nýji framherji Sevilla, Frederic Kanoute, sem skoraði mark heimamanna, en jöfnunarmark Brassa var sjálfsmark. Allar helstu stjörnur brasilíska liðsins voru með í leiknum í gær, ef undan er skilinn töframaðurinn Ronaldinho frá Barcelona, en hann lék ekki vegna meiðsla.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×