Sport

Ronaldinho semur við Barcelona

Brasilíski snillingurinn Ronaldinho hjá Barcelona hefur framlengt samning sinn við félagið til ársins 2010 og fetar þar með í fótspor þeirra Samuel Eto´o, Deco, Xavi og Victor Valdes, sem allir hafa framlengt til ársins 2010. Ronaldinho gekk til liðs við spænska stórveldið árið 2003 frá Paris St Germain í Frakklandi fyrir 17 milljónir punda. Með tilkomu nýja samningsins mun þurfa 85 milljónir punda til að kaupa hann frá Barcelona, en þó Ronaldinho sé einn besti knattspyrnumaður heims, þykir ólíklegt að einhver geri slíkt tilboð í hann.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×