Viðskipti innlent

Forstjóraskipti hjá KB banka

Ingólfur Helgason, framkvæmdastjóri Markaðsviðskiptadeildar KB banka, tekur við starfi forstjóra KB banka á Íslandi af Hreiðari Má Sigurðssyni samkvæmt heimildum Fréttablaðsins. Hreiðar Már mun stjórna frekari uppbyggingu Kaupþings banka frá Lundúnum. Er þetta liður í skipulagsbreytingum og frekari hrókeringum æðstu stjórnenda innan fyrirtækisins. Ingólfur Helgason er viðskiptafræðingur að mennt og hóf störf við einstaklingsráðgjöf hjá Kaupþingi árið 1993. Hann gegndi stöðu framkvæmdastjóra Markaðsviðskipta Kaupþings frá 1997 til 2003 og sömu stöðu hjá KB banka frá árinu 2003.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×