Viðskipti innlent

Samskip opna skrifstofu í Víetnam

Mikill vöxtur er í starfsemi Samskipa í Asíu og hefur fjórða skrifstofa félagsins þar nú verið opnuð í Ho Chi Minh borg í Víetnam. Fyrir eru Samskip með skrifstofu í Pusan í Suður-Kóreu og Qingdao og Dalian í Kína. Rekstur nýju skrifstofunnar heyrir undir aðalskrifstofu Samskipa í Pusan en yfirmaður hennar er Yong-Jun Nam. Sölustjórar í Víetnam eru Suh Chang-Kun og Tran-Huynh Minh og verða þrír starfsmenn á skrifstofunni þar til að byrja með. Flutningar á frystum fiski eru meginverkefni skrifstofa Samskipa í Asíu og hefur starfsemin gengið mjög vel, allt frá opnun fyrstu skrifstofunnar í Pusan í febrúar árið 2003.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×