Sport

Beckham hrósað í hástert

Hæstráðendur hjá spænska stórliðinu Real Madrid eru mjög ósáttir við leikmenn liðsins að meistari David Beckham undanskildnum. " Leikmenn félagsins verða að læra að vera fulltrúar klúbbisins líkt og Beckham," sagði fjölmiðlafulltrúi félagsins. En Beckham var eini leikmaðurinn sem gaf sér tíma til að gefa aðdáendum eiginhandaráritanir á ferðalagi liðsins um heiminn. "Beckham eyddi fjörtíu mínútum á hverjum degi til að sinna aðdáendum eitthvað sem aðrir leikmenn gerðu ekki. Munurinn á Beckham og öðrum leikmönnum er sá að hann man hvernig það er að vera ungur og líta upp til átrúnaðargoða sinna."



Fleiri fréttir

Sjá meira


×