Viðskipti innlent

Stefna að fiskútrás í Asíu

Íslenskt fiskmeti hefur slegið í gegn í Malasíu undanfarnar vikur. Útflutningsfyrirtækið Triton stefnir að mikilli fiskútrás í Asíu þar sem gæði verða tekin fram yfir lágt verð. Fyrirtækið Triton hefur hafið mikið markaðs- og söluátak á íslenskum fiski í Suðaustur-Asíu í samstarfi við fyrirtæki undir forystu Peters Eichenbergers, aðalræðismanns Íslands í Malasíu. Í byrjun júlí var haldin kynningarvika á Sheraton-hótelinu þar sem boðið var upp á alls kyns góðgæti sem féll heimamönnum vel í geð. Örn Erlendsson, forstjóri Triton, segir að íslenskur fiskur hafi bæði vakið forvitni og áhuga hjá Malasíumönnum. Strax á þriðja degi var uppselt á öll kvöldverðarborðin næstu vikuna. Útrás Tritons nær fyrst og síðast til hótela og veitingastaða í efri verðflokkum. Örn segir að fyrirtækið hafi kannað möguleika á að selja fisk í stórmörkuðum en það sé ekki árennilegt því samkeppnin sé miklu erfiðari þar. Hins vegar hafi fiskurinn átt greiða leið að fimm stjarna hótelunum og veitingastöðunum. Kynningin á íslensku sjávarfangi vakti mikla athygli fjölmiðla í Malasíu. Þannig birtist til að mynda opnuviðtal í einu dagblaði við matreiðslumeistarann, Sverri Þór Halldórsson. Útrásin er þó rétt að byrja. Örn segir að forsvarsmenn Sheraton-hótelsins íhugi nú búa til jólamatseðil með íslenskum fiski í desember. Þá hafi fleiri hótel áhuga á fisknum og jafnframt stærri veitingahús.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×