Viðskipti innlent

Lánshæfismat ríkissjóðs óbreytt

MYND/Vísir
Alþjóðlega matsfyrirtækið Fitch Ratings hefur tilkynnt að mat þess á lánshæfi ríkssjóðs sé óbreytt. Lánshæfieinkunn ríkissjóðs gagnvart erlendum skuldum er því enn AA- og AAA gagnvart skuldum í innlendri mynt. Telur Fitch að hagkerfið sé sterkt og lífeyrissjóðakerfið skilvirkt en hins vegar er bent á að heimili og fyrirtæki á Íslandi séu mjög skuldsett á alþjóðlegan mælikvarða og að mikil lántaka bankanna hafi aukið hreinar erlendar skuldir langt umfram skuldastöðu annarra þjóða með sambærilegt lánshæfismat. Allt geri þetta Ísland viðkvæmara fyrir áföllum en horfur séu góðar.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×