Viðskipti innlent

Eimskip kaupir í Færeyjum

Eimskip hefur keypt flutningafyrirtækið Heri Thomsen í Færeyjum, en fyrirtækið rekur rúmlega þrjátíu flutningabíla og þrjú flutningaskip. Tvö þeirra eru stórflutningaskip. Félagið á einnig nýja tvö þúsund fermetra vöruskemmu í Runavík. Nú er tæpt ár síðan að Eimskip keypti færeyska skipafélagilð Farö ship og er þar með að verða leiðandi í flutningum til og frá eyjunum, og um þær líka.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×