Viðskipti innlent

Fjármálaeftirlit í fullum rétti

Fjármálaeftirlitið segist í fullum rétti með að afla sér upplýsinga um væntanleg kaup í fjármálafyrirtækjum. Stjórn Sparisjóðs Hafnarfjarðar telur að eftirlitið hafi hugsanlega farið út fyrir valdsvið sitt með bréfi til stofnfjárfesta í sjóðnum. Hún telur bréfið geta verið villandi. Stjórn sparisjóðsins telur að Fjármálaeftirlitið eigi að ræða hugsanlega sölu á hlutum í sjóðnum við sig, en ekki einstaklingana sem eiga hlutabréfin. Í fréttinni er jafnframt vitnað til orða stjórnarformanns SPH þess efnis að FME hafi ekki lögsögu yfir stofnfjáraðilum heldur yfir fjármálafyrirtækjum. Þá kemur fram í fréttinni að stjórn SPH telji að efni bréfs FME geti verið villandi og vitnað er til eftirfarandi í bréfi stjórnarinnar: “Sérstaklega telur stjórn SPH alvarlegt að gefið er í skyn í umræddu dreifibréfi að FME hafi heimildir til að beita einstaklinga dagsektum, leit og/eða haldi á gögnum við upplýsingaöflun og eftirlit[...].Hið rétta er að FME hefur heimildir skv. 11. gr. laga um opinbert eftirlit með fjármálastarfsemi nr. 87/1998, til að beita umræddum heimildum gagnvart fjármálafyrirtækjunum sjálfum eða lögaðilum sem þeim tengjast, en ekki gagnvart einstaklingum”. Í fréttatilkynningunni er áréttað að Fjármálaeftirlitið hafi eftirlit með eigendum virkra eignarhluta samkvæmt lögum nr. 161/2002 um fjármálafyrirtæki, sbr. VI. og VIII. kafla laganna. Með virkum eignarhlut samkvæmt 2. mgr. 40. gr. laganna er átt við beina eða óbeina hlutdeild í fyrirtæki sem nemur 10% eða meira af eigin fé, stofnfé eða atkvæðisrétti, eða aðra hlutdeild sem gerir kleift að hafa veruleg áhrif á stjórnun viðkomandi fyrirtækis. Samkvæmt 1. mgr. 40. gr. sömu laga ber aðilum sem hyggjast eignast virkan eignarhlut í fjármálafyrirtæki að leita samþykkis Fjármálaeftirlitsins fyrirfram.  Samkvæmt 2. mgr. 107. gr. laganna getur Fjármálaeftirlitið krafist hvers konar gagna og upplýsinga frá einstaklingum eða lögaðilum sem eiga eða hyggjast eignast eða fara með eignarhlut í fjármálafyrirtækjum.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×