Menning

Rúrí og Páll útnefnd í ár

Rúrí og Páll Steingrímsson voru útnefnd borgarlistamenn Reykjavíkur 2005 við hátíðlega athöfn í Höfða í dag. Steinunn Valdís Óskarsdóttir borgarstjóri veitti hvorum listamanni um sig ágrafinn stein, heiðursskjal og ávísun að upphæð 500 þúsund krónur.

Útnefning borgarlistamanns er heiðursviðurkenning til handa reykvískum listamanni sem með listsköpun sinni hefur skarað fram úr og markað sérstök spor í íslensku listalífi.

Rúrí hefur á þrjátíu ára starfsferli jafnan notið mikillar athygli og viðurkenningar. Verk hennar eru í eigu opinberra safna á Íslandi, í Noregi, Finnlandi, Ítalíu og Museum of Modern Art í New York og í einkasöfnum fjórtán landa að auki. Hún hefur haldið á fimmta tug einkasýninga og tekið þátt í 140 samsýningum.

Páll Steingrímsson er frumkvöðull í gerð náttúrulífskvikmynda þar sem hann fjallar um tengsl manns við náttúruna og við dýr í náttúrunni. Efnistök hans hans hafa orðið til þess að nýr flokkur, „Man and Nature“, hefur verið skilgreindur innan heimildarmyndasviðsins. Á árunum 1973 til 1993 var Páll framleiðandi, stjórnandi og tökumaður við fjölda kvikmynda, aðallega heimildarmynda, en einnig leikinnar myndar. Þess má geta að Páll var einnig sæmdur hinni íslensku fálkaorðu í dag.

Þeir sem hlotið hafa viðurkenninguna borgarlistamaður eru eftirtaldir:

 

1995 - Guðmunda Andrésdóttir, 1996 - Jón Ásgeirsson, 1997 - Hörður Ágústsson, 1998 - Thor Vilhjálmsson, 1999 - Jórunn Viðar, 2000 - Björk, 2001 - Kristján Davíðsson, 2002 - Hörður Áskelsson, 2003 - Ingibjörg Haraldsdóttir, 2004 - Hallgrímur Helgason.

 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.