Innlent

Skerjafjarðarbraut þótti óhagkvæm

Sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu höfnuðu tengingu miðborgar Reykjavíkur og Álftaness með Skerjafjarðarbraut fyrir þremur árum þar sem hún var talin óhagkvæm. Menn hafa áður litið til Álftaness við lausn á skipulagsmálum Reykjavíkur. Ekki eru nema tveir kílómetrar úr Vatnsmýrinni yfir á Bessastaðanes sem er enn óbyggt og hefur verið nefnt sem mögulegt flugvallarstæði. Reyndar var lengi vel bannað að byggja á Álftanesi, þar sem byggðin er nú, þar sem svæðið var frátekið undir millilandaflugvöll allt til ársins 1973. Að sögn Gunnars Vals Gíslasonar, bæjarstjóra Álftaness, segir sagan að eftir það hafi byggðin þróast þannig að þáverandi íbúar nessins hafi einfaldlega byggt ofan í gömlu flugvallarstæðin svo hugmyndin kæmi ekki upp. Hann furðar sig því á því að Reykvíkingar nálgist nú Álftanes á þennan hátt. Í borgarstjórn Reykjavíkur í gær kynnti Stefán Jón Hafstein tillögu um vegtengingu yfir Skerjafjörð en hann vill að Vatnsmýrin og Álftanes verði þróuð saman í einni skipulagsheild. Hugmynd um Skerjafjarðarbrú kom reyndar einnig fram í skipulagssamkeppni fyrir þrettán árum en höfundar hennar lögðu jafnframt til að Stjórnarráð Íslands yrði byggt upp á Bessastaðanesi. Bæjarstjóri Álftaness bendir hins vegar á að við gerð svæðisskipulags höfuðborgarsvæðis fyrir þremur árum hafi Skerjafjarðarbraut verið hafnað. Þá hafi niðurstaðan verið sú að brautin yrði ekki hagkvæm fyrr en hún væri komin upp undir Kársnes í Kópavogi og suður undir Engidal í Hafnarfirði. Hugmyndir hafa verið nefndar um sameiningu Álftaness við Reykjavík en bæjarstjórinn segir það skýran vilja íbúanna að vera áfram í sjálfstæðu sveitarfélagi. Þeir kæri sig heldur ekki um stórfellda byggð. Núverandi stefna er að byggðin skuli vera dreifð og fólki líða vel í sveitamenningu að sögn Gunnars bæjarstjóra. Hann segist þó ekki vita hvort sú stefna sé til eilífðar. Hann telur raunar meinbugi á mikilli aukningu byggðar, einkum með hliðsjón af því að nesið sé láglent, hæsti punktur aðeins um 7-8 metra yfir sjó, og spáð er hækkun sjávar á næstu hundrað árum



Fleiri fréttir

Sjá meira


×