Viðskipti innlent

Lífeyrissjóðir sameinast

Fjórði til fimmti stærsti lífeyrissjóður landsins verður til um næstu áramót þegar Samvinnulífeyrissjóðurinn og Lífeyrissjóðurinn Lífiðin sameinast. Stjórnir lífeyrissjóðanna hafa um nokkurra mánaða skeið átt í könnunarviðræðum um sameiningu sjóðanna. Að loknum aðalfundum sjóðanna í gærkvöldi birtu stjórnirnar viljayfirlýsingu um sameiningu sjóðanna sem um síðustu áramót áttu heildareignir upp á 52 milljarða.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×