Viðskipti innlent

4,4 milljarða halli á vöruskiptum

Vöruskipti landsmanna við útlönd voru óhagstæð um 4,4 milljarða króna í síðasta mánuði, borið saman við sama mánuð í fyrra. Fluttar voru út vörur fyrir liðlega 17 milljarða en inn fyrir rúmlega 21 milljarð króna. Verðmæti útflutningsins jókst um tvö prósent í apríl 2005 miðað við apríl 2004 en verðmæti innflutningsins jókst um 21 prósent. Sjávarafurðir voru meirihluti þess sem flutt var út en mest var flutt inn af fólksbílum, fjárfestingarvöru og hrá- og rekstrarvöru.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×