Innlent

Tveir af þremur sýknaðir

Dómur féll í Héraðsdómi Norðurlands eystra yfir þremur mönnum sem gert var að sök að hafa lamið þann fjórða það illa á Húsavík í fyrrasumar að hann hlaut sýnilega áverka á höfði. Þegar gögn og vitnisburðir höfðu verið skoðaðir komst dómurinn að þeirri niðurstöðu að sennilega hefði aðeins einn mannana veitt fórnarlambinu umrædda áverka og aðkoma hinna tveggja þótti þar að auki óljós. Þeir tveir voru því sýknaðir af öllum ákærum en sá þriðji dæmdur í 30 daga skilorðsbundið fangelsi enda ungur að árum og að öðru leyti með hreinan skjöld.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×