Viðskipti innlent

ASÍ bregst harkalega við

ASÍ bregst harkalega við yfirlýsingum fjármálaráðherra um vaxtabótakerfið. Ráðherrann telur koma til greina að endurskoða kerfið frá grunni. Samtök atvinnulífsins telja hins vegar fullt tilefni til að lækka vaxtabætur þar sem fasteignaviðskipti drífi áfram verðbólguna.   Geir H. Harde fjármálaráðherra segir í viðtali við Morgunblaðið í dag að hann telji koma til greina að endurskoða vaxtabótakerfið frá grunnni en OECD segir í yfirliti um efnahagsmál hérlendis að draga eigi úr útgjöldum ríkisins vegna vaxtabóta. Á fjárlögum er gert ráð fyrir tæpum fimm milljarða útgjöldum vegna vaxtabóta. Geir segir að kerfið sem hafi átt að koma til móts við tekjulágt fólk í upphafi hvetji til skuldasöfnunar og það séu ekki heppileg skilaboð. Ólafur Darri Ólafsson, hagfræðingur ASÍ, segir hætt við að þeir tekjulægri, og þeir sem hafa óhagstæðust lánin, verði mest fyrir barðinu á slíkri skerðingu eins og reyndin hafi verið með aðrar skerðingar ráðuneytisins.  Hann segir að það sé ekki hægt að réttlæta slíkar aðgerðir með að vextir hafi lækkað því vaxtabætur lækki samhliða lægri vöxtum. Hækkun á íbúðaverði fyrir einstaklinga sem eru að koma inn á markaðinn er búið að gera meira en að éta upp ávinning almennra íbúðakaupenda af vaxtalækkunum og rúmlega það. Í sama streng tekur Gylfi Arnbjörnsson, framkvæmdastjóri ASÍ. Hann segir sambandið klárlega vilja halda í kerfið Samtök Atvinnulífsins fagna hins vegar yfirlýsingu ráðherrans og segja meðal ananrs á heimasíðu sinni að í ljósi þess að þenslan á fasteignamarkaðnum hafi verið drifkraftur verðbólgunnar undanfarin misseri ætti lækkun vaxtabóta að vera mikilvæg aðgerð í viðnámi gegn verðbólgu.    





Fleiri fréttir

Sjá meira


×