Innlent

Enginn verið handtekinn í Keflavík

Enginn hefur enn verið handtekinn vegna gruns um að hafa ætlað að tæla ungan dreng upp í bíl sinn við skóla í Reykjanesbæ. Lögreglan er nú að kanna þær vísbendingar sem borist hafa. Eins og fram hefur komið reyndi maður á rauðum pallbíl eða fólksbíl að tæla dreng úr fyrsta bekk upp í bíl til sín með því að bjóða honum sælgæti. Drengurinn lét ekki blekkjast og forðaði sér.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×