Innlent

Banamein hnífstungur í brjóst

Tvær hnífstungur í brjóstkassann drógu Vu Van Phong, Víetnamann sem ráðist var í Kópavogi á hvítasunnudag, til dauða. Þetta sýnir frumniðurstaða krufningar. Rannsókn málsins er nokkuð á veg komin og var hinn látni krufinn í gærmorgun. Ljóst er að hann var með fleiri áverka en banastungurnar tvær, bæði önnur stungusár og svo grynnri sár. Vettvangsrannsókn lauk í gær og hefur eigendum íbúðarinnar við Hlíðarhjalla verið afhent eignin aftur. Friðrik Smári Björgvinsson, yfirlögregluþjónn í Kópavogi, segir að þeim sem voru í íbúðinni þegar verknaðurinn var framinn hafi verið boðin áfallahjálp enda sé það í verkahring lögreglunnar á sjá til þess að upp á slíkt sé boðið. Hann segir hluta hópsins hafa verið boðin áfallahjálp strax kvöldið örlagaríka en enginn hafi þegið hjálpina. Eins segir hann að öllum hópnum hafi verið boðin áfallahjálp á vegum Rauðakrossdeildar Kópavogs síðustu daga.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×