Viðskipti innlent

Skiluðu inn tilboði í Símann

Almenningur, Burðarás, Tryggingamiðstöðina og Talsímafélagið skiluðu inn tilboði í Landssímann í dag samkvæmt heimildum fréttastofu Stöðvar 2 og Bylgjunnar. Óskar Magnússon, forstjóri Tryggingamiðstöðvarinnar, og fulltrúar Almennings sátu á fundi í Landsbankanum fram eftir nóttu. Orri Vigfússon, talsmaður Almennings, vill hvorki játa þessu né neita, enda sé hann bundinn trúnaði. Í sama streng tekur forstjóri Tryggingamiðstöðvarinnar. Tilboðsfrestur í Landsímann rann út klukkan þrjú í dag. Fimmtíu fengu útboðsgögn hjá einkavæðinganefnd.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×