Viðskipti innlent

Fresturinn rennur út í dag

Frestur til að skila inn tilboðum í Símann rennur út í dag. Þeir sem ætla að skila inn tilboðum til framkvæmdanefndar um einkavæðingu eru ekki bundnir af þeim tilboðum. Um fimmtíu áhugasamir fjárfestar hafa fengið útboðsgögnin í hendur en samkvæmt þeim reglum sem settar hafa verið þarf hvert tilboð að vera frá hópi sem settur er saman úr a.m.k. þremur hópum eða fjárfestum. Þegar búið verður að fara yfir tilboðin sem berast í dag gefur einkavæðinganefnd, í samvinnu við ráðgjafafyrirtækið Morgan-Stanley, nokkrum tilboðsgjöfum kost á að skila inn bindandi tilboðum. Stefnt er að því að ljúka sölu Símans í júlí.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×