Gæsluvarðhald til 14. júlí 16. maí 2005 00:01
Maður um þrítugt lést af sárum sem hann hlaut í átökum við annan mann í Kópavogi í gærkvöld. Hinn grunaði hefur verið úrskurðaður í gæsluvarðhald til 14. júlí. Í brýnu sló milli tveggja manna af asískum uppruna sem voru gestir í samkvæmi á efstu hæð fjölbýlishúss við Hlíðarhjalla í Kópavogi í gærkvöldi. Lögreglan var kvödd til um hálfellefu leytið. Þá hafði 29 ára maður hlotið nokkur stungusár í brjóstið. Samkvæmt heimildum fréttastofu var lagt til hans með beittum eldhúshnífi sem var í íbúðinni. Maðurinn lést af völdum áverka sinna. Blóð á veggjum, gólfi og handriði sýnir að átökin hafi verið mikil og að þau hafi borist út úr íbúðinni og fram á stigagang. Annar maður, sem virðist hafa reynt að stöðva átökin, hlaut skurðsár á læri og var fluttur á Landspítalann. Hann var ekki lífshættulega slasaður en þurfti að gangast undir aðgerð. Nágrannar segja að hann hafi verið blóðugur en haltrað af sjálfsdáðum upp í sjúkrabílinn. Þrír menn voru handteknir en tveimur sleppt fyrir hádegi. Síðdegis, eftir yfirheyrslur hjá rannsóknardeild lögreglunnar, óskaði lögreglan eftir því að þriðji maðurinn, sem er grunaður um manndrápið, yrði úrskurðaður í gæsluvarðhald til 14. júlí. Dómari við Héraðsdóm Reykjaness í Hafnarfirði féllst á kröfuna. Maðurinn hefur ekki játað verknaðinn. Hann er 33 ára og hefur ekki komið við sögu lögreglu áður vegna ofbeldibrota eða annarra alvarlegra brota. Lögreglan hefur ekkert gefið upp um orsakir árásarinnar.MYND/Vilhelm
Fréttir Innlent Lög og regla Mest lesið Fundu lík karlmanns í Reynisfjalli Innlent Fjórir í bílnum en enginn við stýrið Innlent Yazan afar létt að vera ekki vísað frá landi Innlent „Ég hefði bara sagt af mér á staðnum“ Innlent Kona á níræðisaldri sá björninn í þriggja metra fjarlægð Innlent Frambjóðandi Trump lýsti sér sem „svörtum nasista“ á klámsíðu Erlent Íbúar Springfield klofnir í afstöðu sinni til heimsóknar Trump Erlent Sýknaður af ákæru um manndráp af gáleysi á Akureyri Innlent Títan bilaði og lenti í árekstri nokkrum dögum fyrir hinstu förina Erlent Ákærður fyrir að stinga lækni í kvöldgöngu Innlent Fleiri fréttir Skerjafjarðarskjáldið krefst afsökunarbeiðni – annars fer það í mál Húnninn settur í frost þar til hægt verður að stoppa hann upp „Ég hefði bara sagt af mér á staðnum“ Yazan afar létt að vera ekki vísað frá landi Fjórir í bílnum en enginn við stýrið Fundu lík karlmanns í Reynisfjalli Sýknaður af ákæru um manndráp af gáleysi á Akureyri Ákærður fyrir að stinga lækni í kvöldgöngu „Kerfið er algjörlega að bregðast fólkinu“ Vinnuslys töluvert tíðari á Íslandi en í Noregi Áhyggjuefni að innri landamærin séu ekki betur tryggð Dæmi um að fólk hafi fallið frá á meðan beðið er eftir NPA-þjónustu Kona á níræðisaldri sá björninn í þriggja metra fjarlægð Brynjar vill herða upp á mannréttindahugtakinu Hvítabjörninn felldur: Forðaði sér inn og sendi skilaboð á dóttur sína Útilokar ekki að snúa sér að öðrum verkefnum Senda vopnaða menn á svæðið Tilkynnt um ísbjörn og þyrla gæslunnar ræst út Óska eftir myndefni af Krýsuvíkurvegi Rafrettukóngur og eigandi Drekans sakaðir um 740 milljóna brot Nafn mannsins sem lést í vinnuslysi í Árborg „Fatlaða fólkið verður fyrir miskanum“ Hart tekist á um netaveiði í Ölfusá Reyndist ekki faðir stúlknanna Boða til kyrrðarstundar því íslenskt samfélag standi á krossgötum Engar ábendingar borist þrátt fyrir ákall Ríki og sveitarfélög benda á hvort annað varðandi NPA Útlendingum á Íslandi fjölgar hratt Brynjar snýr sér að mannréttindamálum Almenn ánægja með nýtt útlit Alþingis Sjá meira