Innlent

Ákært vegna Dettifosssmygls

Á mánudag var gefin út ákæra á hendur fimm mönnum í seinni hluta svokallaðs Dettifossmáls, eins umfangsmesta fíkniefnamáls sem hér hefur komið upp, að því er fram kemur í staðfestingu Hæstaréttar á gæsluvarðhaldi yfir einum mannanna. Þessi hluti málsins fjallar um innflutngin á tæpum 7,7 kílóum af amfetamíni sem falin voru um borð í Dettifossi og komu til landsins frá Þýskalandi 19. júlí í fyrra. Í Fyrri hluti málsins snýst um tæp þrjú kíló af amfetamíni og 600 grömm af kókaíni sem reynt var að smygla með sama skipi. Þá tengist málinu innflutningur á e-töflum í pósti. Samkvæmt heimildum blaðsins verður málið dómtekið í byrjun næstu viku.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×