Erlent

58 látnir eftir sjálfsmorðsárás

Að minnsta kosti 58 eru látnir eftir sjálfsmorðsárás í bænum Suwayra í Írak síðdegis. Árásarmaðurinn ók bifreið upp að mannfjölda á grænmetismarkaði í bænum og sprengdi sig þar í loft upp. Í morgun létust sjö lögreglumenn hið minnsta og fimmtán særðust í sjálfsmorðssprengjuárás í borginni Tíkrit í Írak, auk þess sem fjórtán lík fundust á ruslahaug í Bagdad.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×