Viðskipti innlent

Mikill bílafjöldi fluttur frá BNA

Gríðarleg ásókn er nú í að flytja inn bæði nýja og notaða bíla frá Bandaríkjunum því þeir eru tollafgreiddir inn í landið á því gengi dollara sem gildir daginn sem afgreiðslan fer fram. Í undirbúningi er að senda hingað bílaflutningaskip til að stytta biðlistann og biðlisti eftir að flytja hingað bíla í flugi er orðinn allt að sex vikur. Þá verkur athygli að menn eru farnir að kaupa nýja evrópska jeppa á borð við BMW, Volvo og Porsche í Bandaríkjunum og flytja þá svo hingað með flugi.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×