Viðskipti innlent

Tæplega 200 milljóna hagnaður

Tæplega 200 milljóna króna hagnaður varð af rekstri Og fjarskipta eftir skatta á fyrsta ársfjórðungi þessa árs, samanborið við um 80 milljóna króna hagnað á sama tímabili í fyrra. Hagnaður félagsins, sem á og rekur Og Vodafone og 365 prent- og ljósvakamiðla, nam fyrir skatta 243 milljónum króna en í fyrra nam hann 99 milljónum. Heildartekjur Og fjarskipta jukust um 115% á milli ára en þær voru á fyrsta ársfjórðungi þessa árs 3,4 milljarðar króna. Á sama tímabili í fyrra voru þær tæplega 1600 milljónir.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×