Innlent

Axlarbrot á Hellu

Talið er að maður um tvítugt hafi axlarbrotnað þegar hann féll við á stóru og þungu bifhjóli innanbæjar á Hellu um klukkan níu í gærmorgun. Lögreglan á Hvolsvelli sagði að maðurinn hefði verið fluttur með sjúkrabifreið á slysadeild Landspítala - háskólasjúkrahúss. Ekki er vitað nákvæmlega hvernig slysið vildi til, en taldi lögregla þó líklegt að hjólið hefði skrikað undan manninum. Þá sagði lögregla manninn hafa verið vel búinn til akstursins, íklæddur galla og með hjálm.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×