Viðskipti innlent

Hagnaður Avion 2,5 milljarðar

Hagnaður af rekstri Avion Group, móðurfélags Atlanta, Íslandsflugs og Exel Airways, nam tveimur og hálfum milljarði króna eftir skatta í fyrra og munaði þar mestu um mikinn hagnað af Exel Airways. Veltan í fyrra varð 68,5 milljarðar króna, nokkru meiri en áætlanir gerðu ráð fyrir, og jókst um röska átján milljarða frá fyrra ári. Stefnt er að þvi að Avion Gorup verði skráð í Kauphöllinni síðar á þessu ári.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×