Viðskipti innlent

Skattaumhverfi gæti orðið betra

Íslensk fyrirtæki greiða ekki háan tekjuskatt miðað við fyrirtæki í öðrum löndum og skattaumhverfi hér gæti orðið með því besta í heiminum, samkvæmt skýrslu sem Deloitte vann fyrir Samtök atvinnulífsins. Frjáls félagasamtök telja hins vegar skattaumhverfið óhagstætt góðgerðafélögum. Í úttekt á skattaumhverfi íslenskra fyrirtækja var dregin upp mynd af skattlagingu fjögurra fyrirtækja í ólíkum atvinnugreinum og var stuðst við skatttekjur í OECD-ríkjunum frá árinu 2004. Samkvæmt niðurstöðunum greiða íslensk fyrirtæki ekki háan tekjuskatt miðað við erlend fyrirtæki auk þess sem tryggingargjald og aðrir launatengdir skattar hér á landi eru með því lægsta sem gerist. Höfundar skýrslunnar benda á að samsetning tekna hins opinbera sé aðeins öðruvísi á Íslandi en að meðaltali í OECD. Meiri skattlagning sé á almenna neyslu og tekjur hins opinbera af hagnaði fyrirtækja séu frekar lágar og það sýni að skattlagning á íslensk fyrirtæki sé vel samkeppnishæf. Samtök atvinnulífsins telja að skattaumhverfi fyrirtækja hafi batnað mikið. Ari Edwald, framkvæmdastjóri samtakanna, segir skýrsluna sýna að hægt sé að gera betur og Íslendingar þurfi að gera aðeins betur en samtökin telji að ekki þurfi mikið átak miðað við þá miklu áfanga sem hafi náðst. Það hafi mikla markaðslega þýðingu fyrir Ísland að geta undirstrikað enn frekar að hér séu hagstæð starfsskilyrði í skattalegu tilliti og það eigi að geta aukið skatttekjur ríkisins einnig, að það sé alveg skýrt að hér vilji fyrirtæki vera. En það eru ekki allir sáttir við skattaumhverfið á Íslandi. Forsvarsmenn frjálsra félagasamtaka hér á landi kynntu skýrslu um skattaumhverfi samtakanna, með sérstöku tilliti til góðgerðarsamtaka. Í henni kom fram að skattaleg staða frjálsra félagasamtaka hefði versnað á undanförnum árum og að skattaumhverfi íslenskra góðgerðarfélaga væri erfitt. Verulega skorti á að skattalegt svigrúm hefði verið nýtt sem skyldi til þess að efla starfsemi mannúðarfélaga hér á landi.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×