Innlent

Skemmtun í miðri viku

Á nær öllu landinu voru skemmtistaðir opnir síðasta vetrardag og dansleikir víða. Alls sóttu 160 nemendur Menntaskólans á Akureyri dansleik í félagsheimili Ólafsfirðinga, Tjarnaborg. Lögreglan segir ballið hafa farið vel fram. Á Egilsstöðum sótti margt fólk skemmtistaði bæjarins og var um tíma fullt út úr dyrum á skemmtistaðnum Svart hvítu hetjunni. Helst var róstursamt á Selfossi þar sem lögreglan þurfti að stöðva tvenn átök manna og ungur maður gisti fangageymslur í Borgarnesi eftir dansleik Geirmundar Valtýssonar.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×