Menning

Kristinn og Jónas fá styrk

Norræni menningarsjóðurinn hefur veitt Kristni Sigmundssyni óperusöngvara og Jónasi Ingimundarsyni píanóleikara 750 þúsund króna styrk til tónleikaferðar um Norðurlönd. Í umsögn sjóðsins segir að það sé mjög fátítt að þekktir íslenskir tónlistarmenn fari í tónleikaferðalög um Norðurlönd og flytji klassíska íslenska tónlist, eins og til stendur. Tónleikarnir verða haldnir í samstarfi við nokkur íslensk fyrirtæki, Íslendingafélög og sendiráð Íslands á Norðurlöndum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.